Hann ætlar um holur að semja.
Hvernig þær kannski eigi að hemja.
Á vegunum víða.
Alls ekki prýða.
Svo hvernig má ástandið temja?
Hann ætlar um holur að semja.
Hvernig þær kannski eigi að hemja.
Á vegunum víða.
Alls ekki prýða.
Svo hvernig má ástandið temja?
Eins konar hæka:
Dagurinn rétt að byrja.
Hlusta á þögnina.
Svo skelli ég mér í sund.
Limra:
Að mana fram andann er eilítið puð.
Orðin í kollinum mynda smá suð.
Bros´ út í annað.
Alls ekki bannað.
Þegar allt smellur, verður hressandi stuð.
Bráðum skellur á mig enn eitt árið.
Æðir tíminn hratt sem mesta fárið.
Tek því bara,
engu að svara.
Lundin létt og loksins búin´ að klippa hárið.
Alltaf gott að hugsa mál til enda.
Á kosti´ og galla má þá líka benda.
Kannski skýrslu skili.
Gef þó ekkert upp í bili.
Í kosmosið má góða strauma senda.
Mana fram andann og orðunum safna.
Engu að lofa samt fáu að hafna.
Lífið er skrítið.
Ekki svo lítið.
Allt gengur vel, margt að vaxa og dafna.
Að svamla í sjónum og kæla sig vel.
Síðan í gufu ég nokkra stund dvel.
Fer aftur í kalt.
Það er mjög svalt.
Minni þá kannski á forvitinn sel.
Stöku sinnum limrur smíða.
Sem um reynslu ef orðin bíða.
Skrýtnar sumar.
Andinn þrumar.
Þessi fær að flakka víða.
Að rölta um hverfið og umhverfið skoða.
Skrefunum safna og sjá ýmislegt til boða.
Skemmtilegt nokk.
En fer ekki´ á skokk.
Enn eina limruna nú búin að hnoða.
Ágætur vani að vakna í bítið.
Virkja margt, bæði stórt og lítið.
Dagarnir betri
með alls konar letri.
Þetta er ekkert svo skrítið.
Áföll eru alls konar, bæði slæm og góð.
Úr þeim þarf að vinna í reynslu-banka-sjóð.
Sumt skal betur skoða,
að ekki reynist froða.
Um eitt og annað verð þá afar mikið fróð.
Nú færist yfir kuldi´ og vetrar-húm.
Og kannski sumir hugsa´ um drauginn Glúm.
Í Krónu er stutt.
Er því sem næst flutt.
Mig vantar samt sófa, stól og nýtt rúm.
Dót eða drasl eða óþarfa glingur.
Dæma það strax eða sjá gegnum fingur.
Dugleg að flokka.
Á svo marga sokka.
Þetta er slattin en brátt lokast hringur.
Sundið heilar og heilsu bætir.
Hressir lund og andann kætir.
Bringa og skrið.
Finn í gufu frið.
Dagurinn svo glaður mætir.
Stefnubreyting stuð og veisla.
Stend með mér og kraftinn beisla.
Á réttri leið,
sú er greið.
Sendi frá mér bjarta geisla.
Að hoppa í sjóinn er sérlega gott.
Svamla´ út að kaðli og skunda í pott.
Nærir og gefur.
Mátt mikinn hefur.
Á eftir er húðin svo mjúk og svo flott.
Laufin gulna og roðna trjánum á.
Og vindurinn reynir að rífa frá.
Skuggar lengjast.
Sumir engjast.
Lífið er alls konar beint og á ská.
Minningar og magnaður tími.
Mun festa þær með hugar-lími.
Keðja traust.
Ég er hraust.
Bráðum flyt í nýrra, minna rými.,
Þegar orðin mæta mörg í hnapp,
með heljarinnar keppnis-kapp.
Hvað skal gera?
Fleira hlera.
Gefa má þá eitt gott klapp.
Alheimurinn og andinn eru með mér í liði.
Og allt á fullkomnu hressandi skriði.
Muna að njóta,
ekki skal þjóta.
Gamla lífið kveð sátt og með friði.
28/8
Trítla´af stað með stóran poka.
Stutt að fara, engin þoka.
Nálgast fisk,
á minn disk.
Ekki mun ég lengi doka.
29/8
Tíminn æðir ógnar hratt.
Ekki er að bíða.
Tikka´ í boxin, tækla bratt.
Tilboð er að smíða.