Tuesday, August 23, 2016

Ein glæný ferskeytla

Sælir og heilir, heiðursmenn
heyra vil af þessu.
Kirkjustarfið byrjar senn
segja þarf frá messu.

Wednesday, May 4, 2016

Nýjasta limran

Stundum raðast orðin illa niður.
Engin ríma saman því er miður.
Prófa samt.
Dugar skammt.
Limrusmíð er skemmtilegur siður.

Monday, May 2, 2016

Gangandi andagift

Heilsufarið harla gott
hjálpar mikið sundið.
Nokkuð þykir formið flott
farið hefur pundið.

30. apríl 2016

Apríl senn á enda er
enga sé ég dellu.
Svo ég segi hvernig fer:
Skrapp þó fyrst til Hellu

Sunday, February 28, 2016

Í notað yfir 160 sinnum á skjáskræðunni árið 2015

Oft ég nota í í skrifum

Ekki stendur fyrir þrifum. 


Enn eitt í,


pæli' í því.
 
Samið undir í áhrifum.



Tuesday, January 26, 2016

Nýjasta ferskeytlan varð til í gær.

Leyndarmálið litla mitt
langar til að deila.
Þó það gæti kostað sitt
það mig gerir heila.

Thursday, January 21, 2016

Ný ferskeytla

Minningar mig leita á,
margar ansi góðar.
Kannski kemur meira, já
kinnar mínar rjóðar.