Monday, May 5, 2025

Nýjasta limran, samin í gær 4.5.2025

Andinn óþekkur neitar að mæta.

Ýmislegt fyrst þurfi´ aðeins að bæta.

Reyni að laga.

Allt önnur saga.

Gefst ekki upp, ekki séns, ekki glæta!

Sunday, April 27, 2025

Ætli andinn sé að vakna aftur?

Sólin ætlar að sýna sig.

Stafa geislum, kalla á mig.

Búin í sundi.

Kannski skundi.

Gönguferð gefur einnig stig.

Steingrímur Ari fermdur 17. apríl 2025

 Ungur maður Jesú mætir

magnað lífið er.

Veisla með vinum alltaf kætir

við skulum hafa gaman hér.

Saturday, June 1, 2024

Bekkjarbróðir minn forsetaframbjóðandinn

Maður hraustur, einnig hýr,

hár er ekki aldur.

Sá er traustur sem og hlýr

stimplaði við Baldur.

Sunday, September 24, 2023

Lífsgátu limrur

Þessi staður, þessi stund.

Stúlkan sú er létt í lund.

Enginn tími til.

Aðeins milli bil.

Flæðið opnar fyrir fund.


Tilveran um núið snýst,

minningar og hvað þú kýst.

Ekki´ um völd

í eina öld.

Á framtíðina ei skal þrýst. 

Sunday, July 16, 2023

Sumarfrí framundan

Þegar ekki er bongó en mikið um ský,

er langbest að skella sér sjóinn í!

Kæla sig vel,

dásamlegt tel.

Og framundan fimm vikna sumarfrí.

Thursday, July 6, 2023

Síðan 04.07.23 birt á FB

Orðin þurfa´ að sýna sig.

Skilaboð fyrir sjálfa mig.

Stutt í fríið.

Lítið mýið.

Þá má skoða næsta stig.