Sunday, September 27, 2015

Föstudagsandinn (25.9.2015)

Úti lognið læðist um
lokkar mig til dáða.
Ekki neitt um fálm né fum
færnin má nú ráða.

Saturday, May 23, 2015

Dagur tvö í ljóðaáskorun

Orðin mörg ég saman set
sum þau ríma ef ég get.
Svo í sund
þvílík stund.
Limra þessi´ er alveg met.

Friday, May 22, 2015

Áskorun tekið, dagur 1



Geislar inn um gluggann minn
Gula tekur völdin.
Lundin létt og ylinn finn
les ég oft á kvöldin.

Saturday, March 28, 2015

Og þessi vísa varð til í morgun

Legg ég saman lófa mína
leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.

Enn ein limran, varð til 18. mars sl.

Hugurinn um víðan völl,
væntingar og hlátrasköll.
Alltaf stuð
hugsa´ um Guð.
Veit að trúin flytur fjöll.


Thursday, January 8, 2015

Tækifærislimra



Falleg ertu frænka mín
með fjólubláu augun þín
brosið hlýtt,
alltaf nýtt
úr andlitinu gleðin skín.

Þessi varð til á fjórum mínútum, og ég sem hélt að andinn væri í verkfalli.  :-)

Friday, December 12, 2014

Staka og limra fyrir tvo vinnufélaga

Ljúfur Tobbi alltaf er

og brosir út í bæði.

Ekkert illt í neinum sér

allir um það ræði.

 

 

Limru´ um Jóa Vil ég vil

við það margt skal tína til.

að utan hrjúfur,

innan ljúfur.

Þetta nægir hér um bil.