Saturday, March 28, 2015

Og þessi vísa varð til í morgun

Legg ég saman lófa mína
leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.

Enn ein limran, varð til 18. mars sl.

Hugurinn um víðan völl,
væntingar og hlátrasköll.
Alltaf stuð
hugsa´ um Guð.
Veit að trúin flytur fjöll.


Thursday, January 8, 2015

Tækifærislimra



Falleg ertu frænka mín
með fjólubláu augun þín
brosið hlýtt,
alltaf nýtt
úr andlitinu gleðin skín.

Þessi varð til á fjórum mínútum, og ég sem hélt að andinn væri í verkfalli.  :-)

Friday, December 12, 2014

Staka og limra fyrir tvo vinnufélaga

Ljúfur Tobbi alltaf er

og brosir út í bæði.

Ekkert illt í neinum sér

allir um það ræði.

 

 

Limru´ um Jóa Vil ég vil

við það margt skal tína til.

að utan hrjúfur,

innan ljúfur.

Þetta nægir hér um bil.

Tuesday, August 19, 2014

Til Geirlaugar 16. ágúst sl.

Formið gott og falleg er,
fyllir hálfa öld.
Ellimerki engin sér
og fagnað skal í kvöld.

Sunday, August 17, 2014

Kjartan og Geirlaug fimmtug

Bæði tvö í tugi fimm
til samans gera hundrað.
Aldrei verður ævin dimm
ekkert fær þeim sundrað.

Tuesday, August 12, 2014

Fyrrum vinnufélagi fertugur í dag

Í fjóra tugi hefur hann,
heldur betur lifað.
Um að ræða mætan mann
meira ei er skrifað.