Friday, July 19, 2013

Nokkrar föstudagsferskeytlur

Tíminn flýgur furðu hratt,
festir ekki rætur.
Það hef fyrir hreina satt
hann er ekki ætur.

Einskis vil ég óska mér,
óþarfi að vona.

Það veit sá er allt hér sér
svalt að hugsa svona.
(Ég er hörku kona!)

Sumarblíðan hún er hvar?
Heldur sig til baka.

Leitað hef ég hér og þar
hefur sólin vaka
-ð?

Andinn góður, lundin létt
ljúft að vera til.

Þetta þykir ekki frétt
þó segja hana vil.

Lýsi eftir logni´ og sól
leitt að vantar sumar.
Ef það kemur kátt um jól
kannski fæ mér humar.



Tugi telur hún í sex
tíguleg er frúin.
Með aldri nokkur virðing vex,
vinsæl barnatrúin.


Monday, March 14, 2011

Mig langar að segja sögur
syngja og lesa mikið.
Semja og bulla bögur
bæta mig fyrir vikið.

Það er gaman að sitja og sauma í
sjá myndirnar verða til.
Finn oftast fró og hvíld í því
að framkvæma mér í vil.
ASH 14.03.2011
Eftirfarandi staka varð til er ég var á leið í vinnu í fyrra fallinu mánudaginn 7. mars. Enginn var búinn að labba upp Eiríksgötuna rétt upp úr sjö:

Ég markaði spor í mjallhvíta fönn.
Magnað til baka að líta.
Hugurinn hélst þó við dagsins önn.
Held ei neitt muni' á mig bíta.
Afmælisvísur

Dagný hún er draumlynd mær
dugleg, oft hún bakar.
Hún var tuttuguogníu í gær
aldurinn ekki sakar.

Skemmtileg og skemmtir þér
skondin oft á köflum.
Ferðast vill og leika sér
og taka þátt í lífsins spennu-töflum.

Samið 28.02.2011 (sama dag og umrædd Dagný varð 30 ára)

Thursday, January 27, 2011

Nokkrar stökur

Löngun hef til að tjá mig,
töluvert hef að segja.
Sumt er samt ekki fyrir þig.
Stundum er best að þegja.
15.09.2010

Oft þá falla stakar stökur,
steypast beint í kollinn inn.
Brátt ég kannski baka kökur,
kátur verður Davíð minn.
18.09.2010

Mér þykir ósköp vænt um þig,
er þá pínu væmin.
Neikvæðni sjaldan borgar sig,
það sanna fjölmörg dæmin.
22.09.2010

Framundan eru strembnar stundir.
Standast allar átt.
Hugsa bara um grænar grundir
og grasið fyrir slátt.
15.11.2010

Friday, October 16, 2009

Í tilefni fjölgunar í kortadeild:

Ljóshærð og léttfætt stúlka hún er
lipur við allt og alla.
Það er svo sama hvernig fer
sú stutta má okkur frænku og ömmur kalla.

Vildís okkar væn og góð
verður pottþétt mamma.
Þú skalt feta þína slóð
stolt og knarreist þramma.

Thursday, January 29, 2009

Afmælisstaka

Formaður og fjörug er,
fær um eitt og annað.
Gengið galvösk þar og hér
grónar leiðir kannað.
ASH/DO